Nám í menntavísindum er ætlað þeim sem vilja auka sérþekkingu sína og starfshæfni á sviði menntamála.

Þær áherslulínur sem eru í boði eru:

Tengdar námsleiðir:

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á að bæta við þekkingu þína á sviði menntamála?
  • Vilt þú þjálfa hæfni þína til að takast á við mismunandi verkefni?
  • Finnst þér þurfa að efla ákveðna þætti í skólastarfinu?
  • Viltu verða hæfari í að mæta þörfum ólíkra nemenda?
  • Hefur þú áhuga á að sérhæfa þig í stjórnun menntastofnana?
  • Viltu auka hæfni þína í notkun upplýsingatækni í skólastarfi?

Fyrirkomulag náms

Brautarstjóri námslínunnar er Anna Elísa Hreiðarsdóttir.

Kennsla fer fram í staðbundnum námslotum í Háskólanum á Akureyri og er skyldumæting í þær. Jafnframt eru margvíslegir möguleikar notaðir við miðlun efnis og til gagnvirkra samskipta.

Hér getur þú séð hvenær námslotur eru.

Nemendur geta sótt námskeið á meistarastigi við aðrar deildir HA og í gesta- eða skiptinámi.

Áherslur námsins

Námsleiðin hentar nemendum með menntun sem tengist ekki þeim áherslusviðum sem eru í boði í menntavísunum við HA. Námsleiðin veitir nemendum tækifæri til þess að dýpka þekkingu sína og auka hæfni á áhugasviði sínu.

Þú getur skoðað skipulag námsins á Uglu, kennsluvef háskólans.

Möguleikar að námi loknu

Nám í menntavísindum hentar sérstaklega vel þeim sem hafa reynslu af fræðslustörfum og vilja dýpka þekkingu sína og efla sig í starfi. Jafnframt eykur það hæfni til að stunda frekara nám.

Inntökuskilyrði

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið grunnnámi á háskólastigi og fengið að minnsta kosti 2. einkunn. Stúdentum er heimilt að hefja meistaranám ef þeir ljúka diplómanámi með 1. einkunn.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.